Um Framvegis
Framvegis er framsækin símenntunarmiðstöð með það að markmiði að bjóða metnaðarfullt nám og námskeið fyrir fullorðna sem svara þörfum atvinnulífsins.
Hjá Framvegis er námsmaðurinn í fyrirrúmi og lögð áhersla á að hann eigi jákvæða og lærdómsríka upplifun. Lögð er áhersla á virka þátttöku námsmanna og fjölbreyttar kennsluaðferðir.
Framvegis er með samning við Mennta- og mennigarmálaráðuneytið og þjónustusamning við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Framvegis er aðili að Kvasir samtökum fræðslu- og símenntunarstöðvar og Leikn samtökum fullorðinsfræðslu.
Unnið er að því að fá gæðavottun EQM og Fræðslumiðstöðvarinnar árið 2012.
BSRB ásamt aðildarfélögum sínum SLFÍ, SFR og St.Rv eiga 51% hlut í miðstöðinni, en Prómennt á 49%
Mynd







