Grunnnám skólaliða fyrir starfsmenn af erlendum uppruna
- Verð: 12.000 kr.
- Númer: Lv121
- Staða: Opið fyrir skráningar
- Lengd (klst/mín): 70 kennslustundir (2:20)
Aðgerðir
Í vor býður Framvegis upp á Grunnnám fyrir skólaliða fyrir starfsmenn af erlendum uppruna í fyrsta sinn. Námið er hugsað fyrir skólaliða í grunnskólum sem hafa annað móðurmál en íslensku og er áhersla lögð á starfstengda íslensku, starfstengdan orðaforða og daglegt íslenskt mál í bland við hagnýtar fræðigreinar fyrir starf skólaliða. Markmið námsins er að þátttakendur þekki til mismunandi aðstæðna og þarfa grunnskólabarna og öðlist aukna færni til þess að efla samskipti við þau, samstarfsfólk og aðstandendur. Lögð verður áhersla á að auka sjálfsöryggi, íslenskukunnáttu og fagþekkingu. Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Yfirlit yfir alla námsþætti:
- Að hefja nám
- Sjálfstyrking og samskiptatækni
- Skipulögð vinnubrögð og upplýsingaleit
- Starfið og ég
- Uppeldi og umönnun
- Slysavarnir og skyndihjálp
- Agi og reiðistjórnun
- Fötluð börn og börn með sérþarfir
- Leikur og skapandi vinna
- Matur og næring
- Ræsting og umhverfið
- Íslenska fyrir skólaliða
Lögð er áhersla á lifandi og fjölbreyttar kennsluaðferðir og að þátttakendur séu virkir. Námsmenn eru ábyrgir fyrir eigin námsframvindu en í boði er stuðningur og aðgangur að námsráðgjöf. Námið hefst í janúar og lýkur í maí. Kennt verður að jafnaði annan hvern fimmtudag kl. 14:00-16:20. Þrisvar á námstímabilinu er kennt heila daga.
Námið stendur skólaliðum í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar til boða að kostnaðarlausu. Námið er metið til allt að 6 einingum á framhaldsskólastigi.*
Nánari upplýsingar
Ragnhildur Bolladóttir
Sími: 581 1900
*Athugið að framhaldsskólum er sjálfsvald sett hvernig þeir meta námið. Einstaklingar með 3 ára starfsreynslu sem taka viðeigandi viðbótarnám geta fengið Grunnnám skólaliða metið inn í Brúarnám í Borgarholtsskóla. Hægt er að lesa nánar um mat námsins og möguleika á áframhaldandi námi á heimasíðu Framvegis.
Stundaskrá
| Dagsetning | Tími frá | Tími til | Staðsetning | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 19.1.2012 | 14:00 | 16:20 | Skeifan 11b, þriðja hæð. Bak við Rúmfatalagerinn | NN |
Skráning á námskeið
Skráning á námskeið
Nýskráning
Afskráning af námskeiði
Sértu þegar skráð(ur) á námskeið og vilt afskrá þig smelltu hér.
Fréttir
Undirbúningur haustannar
Starfsfólk Framvegis undirbýr nú fjölbreytt námsframboð haustannar. Námskeið Framvegis verða að venju spennandi og er stefnt að því að bjóða upp á sígild og sívinsæl námskeið í bland við nýjungar. Bæklingurinn verður sendur í hús í haust en námskeiðin verða birt hér á vefnum bráðlega, fylgist með !

Mynd






