Líkamsbeiting
Lýsing: Fjallað verður um undirstöðuatriði góðrar líkamsbeitingar og vinnutækni. Rætt verður um vinnuumhverfið og fjallað um mismunandi leiðir til að bregðast við óæskilegum áhrifum vinnunnar á einstaklinginn. Verkleg kennsla í líkamsbeitingu og léttum æfingum sem geta hjálpað við álagseinkenni.
Leiðbeinandi: Starfandi sjúkraþjálfari
Þessi fræðsla ferðast inn á vinnustaðinn þinn og er því tímasett eftir samkomulagi. Hafðu samband við Sólveigu og fáðu nánari upplýsingar. Hægt er að sníða lengd fræðslunnar að þörfum vinnustaðsins.
Fréttir
Undirbúningur haustannar
Starfsfólk Framvegis undirbýr nú fjölbreytt námsframboð haustannar. Námskeið Framvegis verða að venju spennandi og er stefnt að því að bjóða upp á sígild og sívinsæl námskeið í bland við nýjungar. Bæklingurinn verður sendur í hús í haust en námskeiðin verða birt hér á vefnum bráðlega, fylgist með !

Mynd






