Samtals- og viðtalstækni
Markmið: Að þátttakendur dýpki þekkingu sína á ýmsum sviðum samskipta í leik og starfi. Að loknu námskeiði eiga þátttakendurfélagsliðar að geta greint samskipti á vinnustað og bent á leiðir til lausna.
Lýsing: Á námskeiðinu munu starfsmenn kynnast ólíkum samskiptaformum, fjallað verður um mun á á jákvæðum og neikvæðum samskiptum. Fjallað verður um leiðir til að verjast ágengni og sýna sjálfstyrk sem og leiðir til úrlausna í erfiðum samskiptum. Farið verður yfir hvernig þátttakendur geta þekkt hvernig vinnustaðamenning hefur mótandi áhrif á samskipti.
Þessi fræðsla ferðast inn á vinnustaðinn þinn og er því tímasett eftir samkomulagi. Hafðu samband við Sólveigu og fáðu nánari upplýsingar. Hægt er að sníða lengd fræðslunnar að þörfum vinnustaðsins.
Fréttir
Undirbúningur haustannar
Starfsfólk Framvegis undirbýr nú fjölbreytt námsframboð haustannar. Námskeið Framvegis verða að venju spennandi og er stefnt að því að bjóða upp á sígild og sívinsæl námskeið í bland við nýjungar. Bæklingurinn verður sendur í hús í haust en námskeiðin verða birt hér á vefnum bráðlega, fylgist með !

Mynd






