Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Fara á forsíðu

Þjónustustjórnun

Markmið:  Að þátttakendur þekki mikilvæg atriði í þjónustu og samskiptum við óánægða viðskiptavini

Lýsing: Á námskeiðinu eru tekin fyrir fjölmörg atriði þar sem sýnt er hvernig hægt er gera góða þjónustu betri, jafnvel framúrskarandi og hvað ber að varast. Megináhersla er lögð á hvernig góð þjónusta byggir á sjálfstrausti og góðum samskiptum. Greint er frá mikilvægum atriðum í þjónustu. Hvernig á að taka á “erfiðum” viðskiptavinum og hvernig hægt er að snúa kvörtunum upp í tækifæri til jákvæðra úrbóta.

Líkamsbeiting

Lýsing: Fjallað verður um undirstöðuatriði góðrar líkamsbeitingar og vinnutækni. Rætt verður um vinnuumhverfið og fjallað um mismunandi leiðir til að bregðast við óæskilegum áhrifum vinnunnar á einstaklinginn. Verkleg kennsla í líkamsbeitingu og léttum æfingum sem geta hjálpað við álagseinkenni.

Samtals- og viðtalstækni

Markmið: Að þátttakendur dýpki þekkingu sína á ýmsum sviðum samskipta í leik og starfi. Að loknu námskeiði eiga þátttakendurfélagsliðar að geta greint samskipti á vinnustað og bent á leiðir til lausna.

Lýsing: Á námskeiðinu munu starfsmenn kynnast ólíkum samskiptaformum, fjallað verður um mun á á jákvæðum og neikvæðum samskiptum. Fjallað verður um leiðir til að verjast ágengni og sýna sjálfstyrk sem og leiðir til úrlausna í erfiðum samskiptum. Farið verður yfir hvernig þátttakendur geta þekkt hvernig vinnustaðamenning hefur mótandi áhrif á samskipti.


Mynd

Framvegis - Miðstöð símenntunar í Reykjavík