Flokkar: Símenntun Sjúkraliða

Námskeiðið felur í sér kynningu á mismunandi blóðtökukerfum (Becton Dickinson, Vacuette, Sarstedt). Farið verður yfir grundvallaratriði við sýnatöku og rætt um mikilvægi réttrar glasaröðunar. Þá verða ýmsir áhættuþættir sem varða sýnatöku skoðaðir, svo sem afleiðing of langrar stösunar. Jafnframt verða orsakir rauðkornarofs skoðaðar og rætt um hvernig hægt sé að stuðla að betri niðurstöðu mælinga. Einnig verður farið yfir ýmsar upplýsingar sem finna má í Þjónustuhandbók Landspítala. 

Leiðbeinendur:   Erla Bragadóttir, Lífeindafræðingur og kennslustjóri á Rannsóknarkjarna LSH, Edda Ásgerður Skúladóttir, lífeindafræðingur á Rannsóknarkjarna LSH og Brynhildur Ósk Pétursdóttir, lífeindafræðingur og kennslustjóri á Sýklafræðideild LSH.

ATH - Sama námskeið kennt tvisvar sinnum. 

Námskeið 1: 
Tími                  29. apríl
Kl.                     17:00 – 22:00
Punktar:            6 punktar
Verð:                 20.500 kr.

Námskeið 2: 
Tími                  30. apríl
Kl.                     17:00 – 22:00
Punktar:            6 punktar
Verð:                 20.500 kr.