Innskráning Register
Sjúkraliðar   
Námskeið fyrir fagstéttir
Námskeið opin öllum
Um Framvegis   


Framvegis, miðstöð um símenntun er sjálfstætt fræðslufyrirtæki í eigu BSRB, Sjúkraliðafélags Íslands, SFR, Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Tölvuskólans iSoft Þekkingar.   Framvegis vinnur í nánu samstarfi við framangreinda aðila sem og Fræðslusetrið Starfsmennt og símenntunarmiðstöðvar landsins.

Framvegis var stofnað árið 2001 og hefur frá upphafi lagt höfuðáherslu á símenntun stétta í heilbrigðis- og félagsþjónustu, en þjónusta við aðrar starfsstéttir eins og starfsfólk í skrifstofu- og þjónustustörfum er vaxandi þáttur í starfsemi Framvegis. 


Þjónustusvæðið er allt landið.  Framvegis sendir námskeið út í fjarfundi, býður upp á fjarnám í gegnum Web CT fjarvinnslukerfið og í auknum mæli "sendir" miðstöðin námskeið út á land.   


Fastráðnir starfsmenn hjá Framvegis-miðstöð um símenntun eru þrír.  Leiðbeinendur sem kenna á námskeiðum Framvegis eru í kringum 60 talsins og hefur miðstöðin átt því láni að fagna að hafa á að skipa mjög færum leiðbeinendum sem margir hafa leiðbeint um árabil.

Framvegis kallar saman fagráð tvisvar á ári í þeim tilgangi að ræða námsframboð næstu anna og stuðla að endurnýjun námskeiða samkvæmt þörfum markhópanna.

Tvisvar á ári gefur Framvegis út námsskrá þar sem kynnt eru námskeið komandi annar.  Námsskránni er dreift til fagfólks í heilbrigðis-, félags- og þjónustugreinum auk fyrirtækja og stofnana í fyrrnefndum greinum.

    Heim Námskeið Skráning Um Framvegis Tenglar
Framvegis - Skeifan 11b 108R - 581-4914 - KT: 420306-0320 - framvegis@framvegis.is - ©2008 Framvegis      Privacy Statement