Markmið: Þátttakendur verði öruggari í almennri tölvunotkun.
Námskeiðslýsing: Á þessu námskeiði er allt tekið fyrir sem byrjandinn þarf til að komast vel af stað í notkun tölvu. Hæg yfirferð með reglulegum endurtekningum með það að markmiði að gera þátttakendur færa um að nota tölvuna sjálfstætt, m.a. til að skrifa texta, nota internetið og að meðhöndla tölvupóst. Kennt er tvisvar í viku og er hægt að velja um morgun- eða kvöldnámskeið með möguleika að skipta milli morgun og kvöldhópa án þess að missa úr (t.d. fyrir vaktavinnufólk). Námskeiðið er haldið í samstarfi við Tölvuskólann Isoft Þekkingu.
Leiðbeinandi: Ragnheiður E. Guðmundsdóttir
Tími: 2. – 25. febrúar
Þriðjudaga kl. 8:30-12 eða kl. 18:00-21:30
Fimmtudaga kl. 8:30-12 eða kl. 18:00-21:30
Lengd: 42 kennslustundir
Verð: 39.000
Skráning hér