Ritara- og skrifstofustjóranám
Námið er í samvinnu Framvegis og Verzlunarskóla Íslands og er blanda af staðbundnu námi í Verzlunarskólanum og fjárnámi. Námið gefur 22 einingar á framhaldskólastigi og dreifist á þrjár annir. Staðbundnar lotur eru 3x tveir virkir dagar á hverri önn og fjarnámið er stundað þess á milli.
Markmið: Að þátttakendur tileinki sér hagnýtar aðferðir til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í starfi. Lögð er áhersla á sjálfstæði og skipulagshæfni þátttakenda.
Lýsing: Námið er fjölbreytt og hagnýtt og skiptist í eftirfarandi greinar:
· Bókfærsla
· Viðskiptaenska og ritað mál
· Íslenska til bréfa- og skýrsluskrifa
· Ritvinnsla, Excel og tölvupóstur
· Power Point og Publisher
· Líkamsbeiting og vinnustellingar
· Samskipti við samtarfsmenn og viðskiptavini
· Samtalstækni
· Siðfræði
· Skyndihjálp
· Stjórnun
· Umhverfisfræði
Leiðbeinendur: Ýmsir sérfræðingar á sínu sviði
Tími: Námið dreifist á þrjár annir, staðbundnar lotur 3x 2 virkir dagar
Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2010