Sykursýki
Markmið: Að nemendur verði upplýstir um einkenni og meðferðarmöguleika sykursýki.
Lýsing: Fjallað verður um algengi sykursýki, orsakir hennar og greiningu. Einnig verður farið í lyfjameðferð við sykursýki og þá sérstaklega einblínt á töflur og insúlín. Farið verður yfir fræðslu sem er veitt þeim sem greinist með sykursýki, þá er fjallað um eigin umhirðu, blóðsykurmælingar, spraututækni og blóðsykurstjórnun. Í lok námskeiðsins fjallar formaður Samtaka sykursjúkra um samtökin og lýsir sjónarhorni hins sykursjúka.
Leiðbeinandi: Arna Guðmundsdóttir læknir, Þóra G. Ingimarsdóttir hjúkrunarfræðingur og Sigíður Jóhannsdóttir formaður Samtaka sykursjúkra.
Tími: 9. mars kl. 17-19 og 10. mars kl. 17-20
Lengd: 7 kennslustundir
Verð: 13.000 kr