Munnhirða fólks með sérþarfir
Markmið: Að efla þekkingu, sjálfstæði og færni sjúkraliða við framkvæmd munn- og tannhirðu hjá einstaklingum sem þarfnast aðstoðar við daglega umhirðu tanna og tanngerva.
Lýsing: Fjallað verður um lykilþætti tannverndar, helstu tannsjúkdóma, bólgur og sár í munnslímhúð og munnþurrk. Farið verður yfir réttu handtökin við munn- og tannhirðu, með áherslu á bæði efni og áhöld sem auðvelda þrif tanna og tanngerva hjá fötluðum, sjúkum og öldruðum.
Leiðbeinandi: Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir
Tími: Auglýst síðar
Lengd: 6 kest
Verð: 10.000