Krabbamein
Markmið: Að þátttakendur námskeiðsins hljóti yfirgripsmikla þekkingu um meginþætti sjúkdómsins krabbameins.
Lýsing: Fjallað er um aðhlynningu krabbameinsveikra og hjúkrun þeirra. Einnig eru sjúkdómseinkenni og meðferð, orsakir og tíðni krabbameins skoðuð. Sagt frá faraldsfræði krabbameins og stöðu greiningar og meðferðar í íslensku samhengi. Farið verður yfir algengustu krabbamein og tíðni þeirra og hvernig nýta má upplýsingar til forvarna og rannsókna. Einnig er fjallað um fræðslustarf og forvarnir, starf stuðningshópa krabbameinssjúklinga á vegum Krabbameinsfélagsins, starfi í heimahlynningu og Líknardeildar Landspítalaháskólasjúkrahúss. Í lokin verður sagt frá Krabbameinsfélaginu og starfi þess.
Leiðbeinendur: Þórarinn Guðjónsson dósent hjá HÍ. Laufey Tryggvadóttir faraldsfræðingur, Sigurður Björnsson krabbameinslæknir, Ingibjörg K. Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur, Kristján Sigurðsson yfirlæknir, Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi, Ragnheiður Alfreðsdóttir hjúkrunarfræðingur, Helgi Benediktsson hjúkrunarfræðingur og Guðrún Agnarsdóttir læknir og forstjóri Krabbameinsfélags Íslands.
Tími: 4. mars kl. 12-17
Lengd: 7 kest
Verð: 13.000 kr
Skráning hér