Innskráning Register
Námskeið fyrir fagstéttir
Námskeið opin öllum
Sjúkraliðar   
Lengri námsleiðir   

Framvegis er framkvæmdaraðili eftirfarandi námskeiða fyrir Fræðslusetrið Starfsmennt:

Stuðningsfulltrúanám, grunnur og framhald
Markmiðið með gunnnáminu sem er 160 kennslustundir, er að auka þekkingu og færni þeirra starfsmanna sem starfa í þjónustu við fatlaða, aldraða eða sjúka. Markmiðið með framhaldsnáminu sem er 80 kennslustundir, er að auka faglega vitund og sértæka færni stafsmanna ásamt því að styrkja hugmyndafræðilegan grunn starfanna. Með náminu er stuðlað að auknum lífsgæðum fatlaðra á sviði líkamlegrar, efnislegrar, félagslegrar og tilfinningalegrar vellíðunar, sem leitt getur af sér virkari þátttöku þeirra í samfélaginu. Um er að ræða fjölbreytta kennslu á sviði félags-, sálfræði- og uppeldismála.
Ljúki nemendur bæði grunn- og framhalds-náminu, er það metið til eininga í félagsliðabrú.
 
Rekspölur I og II
Á Rekspalarnámskeiðunum er meðal annars lögð áhersla á einstaklinginn í lífi og starfi, réttindi hans og kjör, sjálfstraust, samskiptahæfni og stöðu hans í fjölmenningarsamfélagi.
Áhersluþættir á Rekspeli I eru
(haust 2009):
a) Einstaklingurinn, starfsvettvangur, réttindi, félagsmál og hlutverk sem opinber starfsmaður.
b) Einstaklingurinn í einkalífi og starfi. Þjóðfélagslegt samhengi aðstæðna, kjara og viðhorfa og eiginleikar og sérkenni sérhvers einstaklings.
c)   Einstaklingurinn á tölvuöld. Kynnt er hvernig nota má tæknina til að stunda samskipti og afla annarra upplýsinga á netinu.
Áhersluþættir á Rekspeli II eru
(vor 2010):
a) Leiðir til að auka sjálfstraust, sam-skiptahæfni, framkomu og rökvísi.
b) Stöðu í fjölmenningarlegu samfélagi, fordóma og samskipti á vinnustað.
c)   Hönnun og áhrif hennar á líf okkar.

Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á heimasíðu Fræðslusetursins Starfsmenntar,

Starfsnám stuðningsfulltrúa grunnur -kennsla hefst 31. ágúst
Starfsnám stuðningsfulltrua framhald -kennsla hefst 5. október
Rekspölur I -kennsla hefst 12. ágúst
Rekspölur II -kennsla hefst á vorönn 2010
 
    Fjarnámskeið Námskeið fyrir fagstéttir Námskeið opin öllum Lengri námsleiðir Fræðsla á ferð
Framvegis - Skeifan 11b 108R - 581-4914 - KT: 420306-0320 - framvegis@framvegis.is - ©2008 Framvegis      Privacy Statement