Þjónustustjórnun
Markmið: Að þátttakendur þekki mikilvæg atriði í þjónustu og samskiptum við óánægða viðskiptavini
Lýsing: Á námskeiðinu eru tekin fyrir fjölmörg atriði þar sem sýnt er hvernig hægt er gera góða þjónustu betri, jafnvel framúrskarandi og hvað ber að varast. Megináhersla er lögð á hvernig góð þjónusta byggir á sjálfstrausti og góðum samskiptum. Greint er frá mikilvægum atriðum í þjónustu. Hvernig á að taka á “erfiðum” viðskiptavinum og hvernig hægt er að snúa kvörtunum upp í tækifæri til jákvæðra úrbóta.
Leiðbeinandi: Margrét Reynisdóttir, M.sc. í stjórnun og stefnumótun og alþjóðamarkaðsfræði. Höfundur kennslumyndbandanna um þjónustu og bókarinnar Þjónusta - Fjöregg.