Innskráning Register
Sjúkraliðar   
Námskeið fyrir fagstéttir
Námskeið opin öllum
Hvað er webct?   

Upplýsingar um fjarnámskeiðin

Framvegis býður upp á fjarnámskeið sem eru kennd í námsumhverfi á netinu. Framvegis er í samstarfi við Verzlunarskóla Íslands um fjarkennslu. Til að skrá sig á fjarkennslunámskeið þarf ekki að hafa mikla reynslu af tölvunotkun. Það eina sem þarf er tölva og góð nettenging.

Fjarnámskeiðin eru kennd í fjórar vikur í senn og samsvarar það 20 kennslustunda staðbundnu námskeiði. Í upphafi hvers námskeiðs fá þátttakendur ítarlegar leiðbeiningar og sýnikennslu um hvernig námsfyrirkomulaginu er háttað. Í byrjun hverrar námsviku fá nemendur námsefni sem þeir vinna svo verkefni úr. Námsefnið getur ýmist verið lesinn texti eða á fyrirlestraformi. Verkefnin geta verið framsett á breytilegan hátt t.d. í formi krossaspurninga, umræðna o.fl.

 

    Upplýsingar um fjarnámskeiðin Öldrunarlyfjafræði (fjar)
Framvegis - Skeifan 11b 108R - 581-4914 - KT: 420306-0320 - framvegis@framvegis.is - ©2008 Framvegis      Privacy Statement